11.10.04

Ráðning í starf Hæstaréttardómara

Í lífsleiknitíma í dag fórum við niður í alþingishús að fylgjast með störfum alþingis. Þar hálfsofnaði ég.

10.10.04

Óvirðing

Viðburðarríkt síðasta kvöld. Ég vann rassinn minn út like I don´t know what. Líkamsæfingar voru mikið iðkaðar, bæði hvað varðar þol vöðva og þol annarra líffæra við áfengisdrykkju. Þol vöðvanna, öfugt við það sem margir myndu halda, varð samt sem áður að lúta í lægra haldi vegna þess að keyrslan var þvílík og ég er allur lemstraður í dag og bara eiginlega alveg ónýtur. Svo var drykkjan heldur ekkert svo mikil.
Ég tók semsagt þátt á fótboltamóti MH með liðinu Tha Rockaz (hvernig sem það á að vera skrifað, að mínu mati líka svolítið tæpt nafn á liði). Fóboltamótið var ekki eini vettvangur íþróttaiðkunar þennan daginn. Ég fór nefnilega líka í kórbasket um daginn og þar er alltaf mikið tekið á. Þannig að maður átti víst að vera frekar heitur fyrir átök fótboltans. Það er nú víst samt málið með þennan tiltekna fótbolta fótboltamótanna í MH, að hann er tekinn misalvarlega af þáttakendum, og líklega taka áhorfendur hann minnst alvarlega.

Kvöldið hófst allavega á því að áðurnefnt lið mitt hittist í heimahúsi eins liðsmanna. Þar hófst *hóst*hófleg*hóst* drykkja liðsmanna, svona til að hóa hópinn saman, hóta nokkrum hó´s, berjá Hófí og, eins og orðatiltækið segir, peppa hópinn saman upp á hólinn.

Þegar við vorum orðnir nokkuð sprækir voru leigubílar teknir upp í Egilshöll. Þar hófst mótið og komumst við, okkur flestum að óvörum miðað við ástand flestra liðsmanna, upp í átta liða úrslit en töpuðum þá 0-1. Við vorum bara almennt séð nokkuð ánægðir með árangurinn. Ég lék í fremstu víglínu og skoraði þrjú mörk. Jeij. Svo var ég líka búinn að snyrta og betrumbæta yfirvaraskeggið mitt og þarna þar sem ég klæddist Bayern Munchen treyjunni minni leit ég út eins og hinn gleymdi þýski framherji/klámmyndaleikari frá 7. áratugnum. Fleira markvert gerðist svosem ekki á mótinu en þó gerði ég eitt sem ég er ekki alltof stoltur af.

Ég ætlaði niður í búningsklefa að fá mér vatn eða e-ð álíka. Þá kom ég að læstum dyrum. Ég hugsa með mér hvurslags háttalag þetta sé á strákunum, að læsa að sér. Ég prófa þá hinar dyrnar sem ég vissi að gengu að sama klefa og viti menn, þær eru ólæstar. Þar arka ég inn og á móti mér tekur fullt af kvennfólki sem voru að klára að klæða sig. Einhverrahluta vegna finnst mér þetta ekkert skrítið og held bara áfram inn klefann en mér heyrist samt sem einhver segi við mig: „Heyrðu vinur, hvað þykist þú vera að gera?"
„Þær hljóta bara að vera í þessum helmingi klefans" hugsa ég með mér og fer yfir í hinn hluta klefans. Þar eru aðrar þrjár dömur að klára að klæða sig. „Halli, hvað ertu að gera??" Er þá sagt við mig og um leið hugsa ég nákvæmlega það sama, hvað í andskotanum var ég eiginlega að gera?? Ég var þarna náttúrulega kominn inn í kvennaklefann, perranum mér sjálfkvæmt og hafði einfaldlega ruglast á klefum.
Ég skaust að sjálfsögðu stystu leið út og vil ég hér með biðjast afsökunar á þessari óvirðingu minni í garð þeirra kvenna sem hér áttu hlutdeild að. Það má þó fylgja sögunni að á þessum fögru kvenmannslíkömum voru föt búin að hylja flest það sem að föt geta hulið. Þannig að ég sá í rauninni ekkert frásagnarvert.
-
Kaup vikunnar (svona fyrir ykkur capítalistana) : Interpol - Antics
Mér finnst sem veröld okkar snúist að mestu leyti um veraldleg gæði.
Eru veraldleg gæði kannski bara gott mál?
Veit ekki.
Haraldur perri

7.10.04

Kjúklingur og franskar

Einu sinni var ég að borða kjúkling og franskar og ég DÓ!
HAHAHAHAHA!!!

4.10.04

Hvurslags

Haraldur! Hvað á þetta að þýða? Þetta er bara ógeð.


Ég bíð spenntur eftir Airwaves.

29.9.04

Mitt framlag til nýyrðamálastofnunar

Um daginn snýtti ég mér um leið og ég var að kúka. Þetta var mér áhugaverð reynsla og kýs ég að kalla þessa aðgerð: „Að snúka".

Hefur þú snúkað þér?

26.9.04

Tæm át

Vó, minn bara kominn með þessa líka svaka fínu mottu. Ja hérna. Ég lít út eins og þýskur klámmyndaleikari frá 7. áratugnum hvorki meira né minna. Ógeðslega myndarlegur og sætur.

-

Djöfull væri það ömurlegt ef það væru leikhlé í knattspyrnu líkt og eru í handbolta eða í Amerískum fótbolta.

Jújú, vissulega.

24.9.04

Sérstök Tilfinning

Stundum finn ég fyrir sérstakri tilfinningu, tilfinningu sem er á sinn hátt góð. Hún lýsir sér einhvernvegin þannig að mér líður vel yfir einhverju sem enn er ólokið, yfir einhverju sem enn á eftir að gerast. Getur verið eitthvað sem maður á eftir að gera mikið af. Ýmist spennandi, skemmtilegir eða þægilegir hlutir, eða allt í senn.
Get tekið sem dæmi þegar ég sat í herberginu mínu fyrir nokkrum mánuðum. Ég var nýfluttur, ekki búinn að koma mér fyrir í herberginu og þá varð tilhugsunin um það þegar allt yrði klárt svo spennandi. Myndir komnar upp, öll húsgögn og allt skart komið á sinn stað, geisladiskarnir í röð og reglu og bara je. Oftar læðist þessi tilfinning upp þegar að mikið hefur verið að gera, stress í gangi og mikið liggur við, eins og t.d. fyrir lokapróf eða e-ð álíka mikilvægt. Nær undantekningalaust kemur þetta fyrir þegar að góð og þægileg tónlist er í gangi, tónlist sem vekur sterkar tilfinningar innra með manni.
Einnig getur þessi sérstaka tilfinning borið af sér mikla draumóra og dagdrauma. Spila með hljómsveitinni sinni og slá í gegn, ef ekki væri nema eina kvöldstund, fá frábæra umsögn o.s.frv.

Kannast einhver við þetta? Hefur einhver eitthvað orð yfir þetta? Ég geri veika tilraun til þess að koma orðum yfir þessa sérstöku tilfinningu og kalla hana „þetta verður allt í lagi" tilfinningin.

Eða er þetta aðeins eitthvað fáránlegt raus í mér.
Hið auma og fíkniefnakennda deyfilyf sem kærulausi maðurinn sprautar sig með þegar í harðbakkann slær?

Veit ekki.

20.9.04

Skóstingur

Það er eitthvað svo fúlt þegar að litla plastdótið, sem heldur skóreiminni saman á endanum svo hún trosni ekki í sundur, dettur af. Það stingur eitthvað svo í stúfana við heildarmyndina af skónum, sérstaklega ef þeir eru nýlegir. Líkt og þegar ég stakk gafli í augað á einhverjum kettlingi um daginn. Það stak reyndar bara frekar mikið í augun almennt.

En þetta eru náttúrulega bara smámunir sem að maður á ekki að láta fara í taugarnar á sér. Ef eitthvað á að fara í taugarnar á manni, þá ætti það að minnsta kosti að vera eitthvað virkilega þess virði, eitthvað sem er það stórt að maður hafi eitthvað upp úr því að láta það fara í taugarnar á sér.

En lang best held ég að sé að reyna að vera sem þolinmóðastur. Telja upp að tíu. Ekki ana út í eitthvað pirringsrugl eins og Kolbeinn Kapteinn hér áður fyrr heldur láta hlutina líða hjá í rólegheitunum og takast síðan á við þá með varlegheitum, meiri þolinmæði og jafnvel örlítilli undirgefni.

ok.

16.9.04

Links

Var ekki til Golftölvuleikur sem hét Links? Um 95´eða e-ð álíka?

Annars eru örugglega fleiri linkar á leiðinni. Bara svona að láta ykkur vita.

Frábært Haraldur, alveg frábært.
Díses.

13.9.04

Lífsmark?

Jæja, nóg komið af því að gera ekki neitt. Skólinn laungu byrjaður og nú tekur bara við harkan sex.

Nær alltaf þegar ég kem heim frá útlöndum, þá reyni ég að halda öllum kvittunum, farmiðum og kassakvittunum til haga frá viðkomandi útlandi. Ég þoli ekki íslenska verðmiða á geisladiskahulstrunum mínum en öllum verðmiðum á hljómdiskum sem ég kaupi í útlöndum finnst mér gaman að leyfa að vera á (tölurnar eru líka oftar en ekki lægri en íslensku upphæðirnar).
Helsta ástæðan fyrir þessu er að ég lít á þessar kvittanir og verðmiða sem ákveðnar sannanir fyrir því að hafa verið á staðnum. Líka bara ágætis tilfinning að geta haft eitthvað í höndunum sem sannar það að til sé líf fyrir utan það litla líf sem maður þekkir hér á fróninu, að til sé eitthvað annað ögn meira framandi í heiminum.
Þess vegna væri það mjög skemmtilegt að geta einhverntímann komið með kassakvittun utan úr geimnum, frá Mars eða eitthvað álíka.

4.8.04

Eitt það besta sem ég geri

er að gera ekki neitt. Það jafnast ekkert á við það. Liggja upp í rúmi og gera ekki neitt. Þetta fellst ekki í svefni heldur fellst þetta í nær algjöru aðgerðarleysi. Hangandi í tölvunni, liggjandi upp í rúmi eins og áður sagði, og bara hugsa. Um eitthvað og ekki neitt. Það held ég að sé mjög hollt endrum og sinnum. Ég átti einmitt einn slíkan dag s.l. frídag verslunarmanna. Þá var maður frekar útkeyrður eftir spilamennsku og road trip til og frá Galtalæk daginn áður. Þannig að ég svaf út til hádegis og gerði síðan bara ekki neitt. Ráfaði bara um á kínasloppnum, hékk í tölvunni, drakk kaffi, ráfaði meira um á kínasloppnum...þið náið hugmyndinni.
Að vísu þurfti ég að standa upp og klæða mig um kvöldið til þess að fara að horfa á City of God (góð mynd) með Árna, Írisi og Olgu. Æjæj. Aumingja ég.

Annað sem er mjög skemmtilegt að gera er að sitja á kaffihúsi í hópi margra góðra vina. Sérstaklega eftir að hafa borðað ógeðslega, geðveikt, brjálað, gott grænmetislasagna ásamt snilldarlega rifnum basilikublöðum og ótrúlega flott sneiddum sveppum.
Mmmmm mmm.

29.7.04

I´m having the time of my life...
 
þegar kemur að því að týna eða gleyma hlutum. Þetta er fáránlegt. Þetta hlýtur bara að enda með því að ég gleymi og týni sjálfum mér.
 
Ég sauð mér pulsur um daginn. Einhversstaðar hafði ég heyrt því fleygt að á sumum pylsusölustöðum  væri smá skammti af pilsner skvett út í pulsuvatnið, því að það ætti að gefa pylsunum öðruvísi og betra bragð (hef samt ekki hugmynd um af hverju). Mér hefur ávallt þótt þetta heillandi í heimi pulsumatargerðar og ákvað því að prófa eitthvað þessu líkt, opnaði eitt stykki bjór (Prins Kristján) og skellti smá skvettu út í pottvatnið.
Það fylgir ekki sögunni að ég fann engann gríðarlegan mun á bragði. (Reyndar var það rétt í þessu að fylgja sögunni.)
Ég vil samt koma því á framfæri að mjólkurdrykkja fer einkar vel saman við pulsuát.
 
Gamli góði jarðarberjagrauturinn í fernunum er frekar góður. Enduruppgötvaði það um daginn. Hann er sérstaklega góður ískaldur með köldum rjóma eða mjólk.
 
Ég er með frekar stórt nef. Og örlítið skakkt í þokkabót.

26.7.04

Áfram Lói!
 
Ég fór á köngulóarkallinn annan um daginn. Mér fannst hún mjög góð, frábært hvernig framleiðendum og leikstjóra tekst að halda í þennan ofurhetjuteiknimynda stíl, hvernig þeir láta allt sem er fræðilega ómögulegt verða mögulegt og á svo svalan hátt. Og væmnin og dramað sem allir eru að segja að sé einum of yfirdrifin finnst mér akkúrat passlega mikið af, í bland við allan hasarinn. Það er virkilega aðdáunarvert að ná fram svo góðri persónusköpun í efniviði sem þessum. (Persónurnar í flestum hasarteiknimynda sögunum eru líka almennt mjög vel skrifaðar...og teiknaðar ef að út í þá sálma er farið.)
 
En er ég sá eini sem að fannst stelpan sem að bjó í hreysinu við hliðina á Peter Parker (köngulóarkallinum) sæt? Mér fannst hún alveg ótrúlega dúllulega sæt og var ástfanginn í bíósalnum í þær mínútur sem að hún birtist á tjaldinu.
---
Ég fór til Ólafsvíkur um helgina í tvítugsafmæli til hennar Jóhönnu. Það var geðveikt gaman.
---
Nú líður brátt að verslunarmannahelginni. Þ.a.l. vil ég hvetja alla til þess að fara á Galtalækjarhátíðina, eða allavega að vera þar kl 22:00 á sunnudagskvöldinu, því að þá mun Gaur leika tónlist.
 
Vei.
 

19.7.04

That´s more like it!
 
That´s more like it!
 
Fyrir hönd ,,That´s more like it!" deildar www.haraldur.blogspot.com,
     
       Sljéttuhundur

18.7.04

Heitur í pottinum
 
Fara í tenórafótbolta, segja Ræsir góðan dag of oft á dag, afgreiða bensínsíu í fína bensann hans Herberts Guðmundssonar, hlýða á Herbert Guðmundsson í ofursvölu græjum Stafræns Megabæts, leika og synda í Elliðaárvatni fyrir Stafrænt Megabæt, hlýða á gríðarþétt segarokk í flutningi Isidors, keyra um á Litla Ljót, taka einn Double T og Snuff á´etta, halda sér góðum út kvöldið, gera innrás í eitthvað fáránlegt partý í 5 mínútur - gera allt vitlaust og fara svo (líkt og Pétur hefur nú þegar talað um), hlýða á glymskrattana í góðum félagsskap og blasta síðan eitt holupartý - þar sem mikið var um drukkna Leifa, spila tónlist, sofna enn og aftur yfir einhverri mynd (í þetta skiptið The Virgin Suicides) Eyða 30 kalli í gítareffecta (djöfuls rugl), horfa á Law and Order, fokkast upp og klæðast jólasokkum.
 
Jeij

12.7.04

Uppskrift að hressleikanum uppmáluðum

Ískaldur bjór, freyðivín, 12 ára gamalt single malt Islay viskí, salsasósa, piparsósa, kíwívín, sprite, volgur bjór, president, svart blektúss, meira kíwívín og sprite, kahlua þeytt saman við pekanhnetuís, bjór, of sterkt blandaður hvítur rússi, enn meira kíwívín, president, bjór sem dottið hefur í jörðina og snúist í fimm hringi áður en hann staðnæmist - tómur, kók, soraviskí, president og mix.
Sé þessu öllu blandað saman ásamt hæfilegum skammti af dvd tónlist og karlmannlegum dansi og öskrum má fá út einn allsherjar ógeðisdrykk auk góðrar þynku í kjölfarið daginn eftir. Inn í allt þetta má skjóta smá bæjarferð klukkan 4 um nótt með 5 sekúndna viðkomu á sólon.
Við má bæta miklu bulli og miklum húmor sem allir hlæja að en enginn skilur nema tveir innan hópsins.
Til að toppa þetta alltsaman er gott að horfa á Shaolin Soccer og Wrongfully Accused í þynkunni kvöldið eftir. Það eikur sýrustig heilans til muna og almennt alla ógeðheilbrigði.

Gott í morgunsárið eða bara hvenær dagsins sem er.

11.7.04

Hvaða rugl er þetta???

Hvaða helvítis rugl er þetta???!!! Hverskonar bloggfærsla var þetta hjá þér Haraldur? Varstu kannski fullur í gær??? HA? Ég krefst þess að þú ritir eitthvað aðeins innihaldsríkara næst, eitthvað sem er það ríkt, að þessa vefmiðils verður minnst allt til ársins 2056.

Fyrir hönd ruglseftirlits www.haraldur.blogspot.com

Sléttuhundur

9.7.04

Það er svo

margt sem ég gæti skrifað um er hent hefur mig undanfarna daga, eins og Eistlandsferð með kórnum o.fl. en mér finnst meira spennandi á þessu augnabliki að velta því fyrir mér hvernig það væri ef að til væri skrúfblýantur er notast við 50.0 blý í staðin fyrir 0.5 blý. 5cm þykkt blý. Það væri heví massíft.

Já.
Það er nú svo.

3.7.04

Tallin

Tad vottar fyrir sma bleytu i harinu minu er eg rita tetta vegna tess ad her i tallin er alveg migandi rigning. Tad er samt sem adur gaman ad segja fra tvi ad her er mikid af hressum leigubilstjorum sem eru frekar nice a tvi. Teir ymist tala vid mann a godri eistnesku, blasta eistneska tjodlagatonlist eda rippa mann svo aerlega ad tad halfa vaeri nog. Samt kostar adeins 500 til 1000 isl. kronur ad aka i ca. 15 minutur. It's niiice.

Kved fra Eistlandi i bili og sjaumst eftir nokkra daga.